Ég veit það að fullt af fólki er þessa dagana
að berjast í bökkum fjárhagslega.  Lægð í atvinnu, háir vextir,
efnahagsvandi ýmis konar er að gera mörgum lífið leitt og valda andvöku nóttum. Ég veit líka að margir hafa komið sér, oft ómeðvitað, í
mjög vonda og sársaukafulla stöðu í fjármálum, og sér veruleika sinn
hrynja og veit að það mun taka marga með sér í fallinu.  Þessi staða,
auk efnahagsvanda þjóðarinnar, er að buga marga skuldara.
Þessi
skuldari lifir í vanmætti gagnvart fjármálum og er stjórnlaus í leit að
lausnum. Margir dvelja einfaldlega í afneitun.  Skuldarinn hefur þá
rörsýn og ranghugmynd að hann geti "reddað" heimilinu og skuldunum með
skammtíma reddingum.  Hann skortir yfirsýn og sér aðeins hluta af
vandanum.  Hann er í skömm og gerir allt sitt til að breiða yfir.  Vegna
þess að hann er í skömm þorir hann ekki að koma upp á borð með lýgina
og notast við það sem hann hefur til að "bjarga sér".  Ræðir við félaga
frekar enn þá sem ættu að vita af vandamálinu.  Hann stofnar til skulda
án ábyrgða, því þær skuldir getur hann nálgast og nýtt  til að bjarga
ástandinu án þess að heimilið viti af.  Hann stofnar til skulda í ábyrgð
án vitundar heimilisins, og hann lýgur að ábyrgðarmanni um aðstæður.
Allt er gert til að fela skömmina og mistökin, og óheiðarleikinn verður
öllu sterkari. Og því lengri tími sem líður verða atburðir, afleiðingar
og skuldastaða verri.
Fyrir slíkan skuldara er þögnin er besta
vopnið.  Skuldarinn forðast að tala um stöðuna og oftar en ekki lýgur
hann til um stöðuna til að vernda sjálfan sig.  Fegrar ástandið. Þessi skuldasöfnun er hömlulaus.  Viðkomandi upplifir sig í stjórnleysi og óttast framtíð og afkomu. Verði eitthvað til að hindra hans örvæntingafullu leiðir til að "redda" málunum getur hann misst stjórn á skapi sínu.
Hömlulaus
skuldasöfnun er sársaukafullt, ruglandi og eyðandi afl. Hömlulaus
skuldasöfnun birtist í ýmsum myndum allt frá því að taka óábyrg lán til
hömlulauss kaupæðis. Skuldasöfnun getur birst sem ofeyðsla,
fátæktarhugsun eða að eiga ekki nóg. Öll skuldasöfnun hefur alvarleg
áhrif á fjárhagsleg, tilfinningaleg, andleg, líkamleg og félagsleg gæði
lífs okkar.
Einkenni hömlulausrar skuldasöfnunnar eru mörg.
Skuldarinn á það til að nota setninguna "að fá lánað" yfir hluti eins og
sígarettur, penna og þess háttar, þótt vitað sé að slíkt verði ekki
endurgreitt. Skuldari fær lánaðar litlar fjárhæðir hjá vinum og
kunningjum. Þúsund kall hér, hundrað kall þar.  Að vera í reikning, fá
skrifað, vera með kreditkort er að vera fullorðinn. Minni pressa og
áhyggjur að borga með kreditkorti en að staðgreiða. Skuldari upplifir
sig merkilegan bara fyrir það eitt að borga reikningana sína eins og
aðrir.  Skuldari finnst hann eignast eitthvað þegar sótt er um lán.  Skuldari er lokaður og vandræðalegur þegar verið er að ræða fjármál.  Hann
lætur sig litlu varða um reikninga sem ekki "verður" að borga þennan
mánuðinn, og á oft erfitt að muna hvernig hann ætlar að ráðstafa þeim
fjármunum sem hann ræður yfir hverju sinni. Hann upplifir óraunverulegar
væntingar þess efnis að það muni verða til peningar í framtíðinni fyrir
þeim skuldbindingum sem hann ert að stofna til í dag.  Hann upplifir óútskýrða sælutilfinningu við það að opna nýjan kredit reikning eða yfirdrátt.  Skuldarinn
telur sig varla raunverulega geta "lent" í alvarlegum
fjárhagsefiðleikum og það muni alltaf vera einhver sem hann getir snúið
sér til.  Hann finnur undirliggjandi og stundum ómeðvitað
tilfinningu þess efnis að hann þurfir einhvern til þess að hjálpa sér
til þess að komast út úr fjárhagsvandræðum sínum.
Og það er einmitt það besta sem hægt er að gera. Fá einhvern til að aðstoða okkur. Ekki fá einhvern til ða borga reikninga og skuldir heldur finna einhvern sem við treystum og viðurkenna vanmátt og stjórnleysi í fjármálum. Drepa óheiðarleikann með
hreinskilni.  Að geta rætt við einhvern sem hefur gengið þessa leið og hefur risið upp úr
myrkrinu er ómetanlegt fyrir okkur. Að upplifa að við erum ekki ein í vanda og ekki ein um að einangra okkur og forðast að tala um vandamálin gefur okkur styrk. Þetta fólk er til staðar og er viljugt að sýna stuðning,
leiðbeina og kenna viðkomandi að breyta rétt.  Verða heiðarlegur,
óeigingjarn og löglegur.  Og umfram allt styðja viðkomandi til að þekkja
sjálfan sig og verða hreinskilinn.
Ef þig vantar einhvern til að tala við getur þú sent mér tölvupóst á skuldlaus.blog@gmail.com eða hitt mig í Virkjun, Reykjanesbæ alla miðvikudaga eftir hádegi.
Kv. Haukur
Ég er ennþá að reyna að tengja saman ofvöxt og spákaupmennsku fjármálastofnanna við svokallaðan skuldavanda heimilanna, en ekkert gengur.
Ef við skoðum aðdraganda hins svokallaða skuldavanda heimilanna fæ ég ekki séð að heimilin eigi sökina. Ég er ekki menntaður peningamaður, en ég get vel séð hvað er raunsætt og hvað ekki. Ég hef engan hitt sem fór í bankann sinn og bað sérstaklega um skuldbreytingu til að koma sér í óefni.  Ég hef engan hitt sem ákvað að skuldsetja á sig einn bíl í þeirri von að skuldin hækki óraunhæft á næstunni. Ekki heldur með íbúðir sem voru sett á erlend lán. Enginn sem ég hef talað við gerði nokkuð annað en að fylgja þjóðfélaginu samkvæmt forskrift og ráðleggingum fjármálafyrirtækjanna. Fylgja því sem aðrir sögðu að væri snjallt og hagkvæmt.
Ef bankahrunið var fjármálaheiminum að kenna og heimilin sitji vanmáttug í súpunni vegna ytri afla er þá ekki rétt að við förum að kalla þetta sínu rétta nafni, vandamál fjármálastofnanna?
Prófið að skipta út orðinu"skuldavandi heimilanna" og setja í staðinn "innheimtuvandi fjármálafyrirtækja". Ef þíð takið allar fréttir, ummæli, umræður, tillögur að
skuldbreytingum, aðstoð við heimilin í landinu og skoðið með þessu
hugarfari má sjá merkilega hluti.
Ég get ekki séð að þetta sé skuldavandi heimilanna.  Þetta er innheimtuvandi fjármálafyrirtækja!
*Meira um fjármál og tilfinningar á www.skuldlaus.tk*
draga andann.  Sú ómeðvitaða aðgerð að draga andann allan daginn, alla
daga, allt árið er okkur sjálfsögð.  En um leið og við verðum fyrir
skertri öndun, eða skorti á súrefni, finnum við viðbrögð.  Við upplifum
ýmsar tilfinningar og líkamleg viðbrögð til að ná betur andanum, og við
leitum strax leiða til að bæta ástandið.  Ef við missum alveg andann
finnum við til innilokunarkenndar, ótta, og jafnvel ofsahræðslu.  Við
skyndilega gerum hvað sem er til þess að ná andanum aftur.  Við upplifum
nákvæmlega það sama með fjármálin okkar.
Stóri gallinn er að við erum uppfull skömm og við þorum sjaldnast að
upplýsa aðra um að við náum ekki andanum í fjármálum, að við séum að
drukkna í skuldum.
Ýmsar  leiðir eru í boði til þess að ná andanum.
Fyrst er það andardrátturinn sjálfur.  Í stað súrefnis er það
fjármagnið sjálft sem við öndum að okkur, og svo frá okkur.  Eðlilegt
ástand er jafnvægi, það sem fer inn, kemur út aftur.  Skuldarar hafa
ekki jafnvægi á innöndun og útöndun.  Þeir anda meira frá sér en að sér,
og verða sífelt andstyttri þar til þeir ná ekki andanum, og þurfa að fá
lánað.  Hjá sumum gerist þetta hægt, hjá öðrum mjög hratt.  Ef þú átt
ekki nóg fyrir mat, borga reikninga og fyrir almennum nauðsynjum, mun
hugur þinn hvetja þig, fyrst með tilfinningum eins og óþægindum og
kvíða, síðar innilokunarkennd og hræðslu.  Vegna feimni um fjármál verða
algeng ósjálfráð viðbrögð við þessu reiði og vanmáttur, og þú gætir
farið að slá frá þér í orðum og verki. Síðar getur örvæntingin komið þér
í að ljúga og fela, og almennt ýtt undir óábyrgar aðgerðir.  Margir
venjast þessu ástandi og festast í þessum óheiðarleika, sem síðan ýtir meira
undir skömm.
Þú þarft ekki að taka þetta nærri þér.  Við erum mörg eins og þú, og
höfum staðið í nákvæmlega sömu sporum.  Við viljum gjarnan styðja þig og
hjálpa þér að ná andanum.  Við viljum benda þér á öndunaræfingar.
Besta öndunaræfingin og sú allra einfaldasta er að taka niður
tölurnar.  Í sinni einföldustu mynd að skrifa niður allar tölur í
fjármálum þínum.  ALLAR tölurnar, ekkert skilið undan.
Hvað færðu í laun, nákvæmlega?
Hvað eyðurðu í mat, 	nákvæmlega?
Hvað fer í reikninga og 	afborganir, nákvæmlega?
Hvað fer í afþreyingu og 	skemmtanir, nákvæmlega?
Skrifa niður allt sem kemur inn, og allt sem fer út.
Til þess að geta þetta þarftu penna og blað, og athygli. Hægt er að
nota litla dagbók til að skrifa í.  Ef ég er ekki með dagbókina, bið ég
um kvittunina, og skrifa inn í bókina að kvöldi hvers dags.
Um mánaðarmót set ég tölurnar í inn og út dálka, og get strax séð
hvort ég er í plús eða mínus, þ.e.a.s. hvort ég sé að þéna eða eyða
meira.
Ef ég er að eyða meira get ég farið yfir og séð hvar peningurinn er að leka út.
Er ég að eyða miklu í 	skyndibitamat?
Er ég að kaupa mikið af fötum?
Fer allt í skuldir?
Er ég að djamma of mikið?
Þegar ég veit hvert peningurinn fer, get ég farið að  gera
ráðstafanir um það hvernig ég breyti fjárstreyminu, og það eru líka mjög
einfaldar aðferðir.
Kæru vinir,
Við erum þessa dagana að færa þessa síðu yfir á nýtt heimilisfang.  Þar munum við betur geta hjálpað ykkur að losna undan skuldafjötrum.  Reyndar stendur mikið til, og fljótlega munum við stíga út úr netheimum og setjast niður með þér, og fyllilega styðja þig til betri tíma.
Við vonum að þú fylgir okkur á nýjar slóðir og finnir þér stað með okkur í áhyggjulausu líferni.
Nýja veffangið okkar er
http://skuldlaus.wordpress.com/
Nýverið var farið að auglýsa sms lán frá fyrirtækinu Kredia.is
Ég hef ekki kynnt mér þetta mjög náið, en þarna er um hættulega lánalínu að ræða fyrir okkur hömluluasu skuldarana.
Að geta tekið lán með einu SMSi, jafnvel um miðja nótt, lítur ekki vel út.Kostnaðurinn er 23 til 25% og lánstíminn er 15 dagar.
Haldið ykkur frá svona smálánum.  Þetta eru óskynsömustu lánin á markaðnum, og hlutfallslega dýrust.  Það má kalla þetta okurlán.
Í frétt á vef Neytendasamtakanna segir:
Kredia, sem skilgreinir sig sem fyrirtæki á sviði smálána, sms-lána og örlána, hefur nýlega byrjað að bjóða upp á svokölluð smálán. Framkvæmdin virðist einföld, allt sem þarf er að skrá sig á netinu og senda svo sms þegar mann vantar pening. Lánin geta verið að upphæð 10.000, 20.000, 30.000 eða 40.000 kr. og þau þarf að greiða upp innan fimmtán daga.
Ef lánaskilmálarnir eru skoðaðir kemur í ljós að þeir eru ekki í samræmi við lög um neytendalán. Hins vegar er það því miður svo að lán sem eru einungis veitt í fimmtán daga falla ekki undir lög um neytendalán.
Ef lánskjörin eru svo skoðuð nánar kemur í ljós að 10.000 kr. lán í 15 daga kostar 2.500 kr., 20.000 kr. lán kostar 4.750 kr., 30.000 kr. lán kostar 7.000 kr. og 40.000 kr. lán sem veitt er í allt að fimmtán daga kostar 9.250 kr. Inni í þessum kostnaðartölum er, skv. upplýsingum af heimasíðu Kredia, kostnaður við lántökuna sjálfa auk vaxta en ekki er nánar sundurgreint hvað er hvað. Kostnaðurinn við minnsta lánið er því 25% sem svarar til 600% kostnaðar á ársgrundvelli.
Lán sem þessi hafa verið harðlega gagnrýnd í nágrannalöndum okkar, enda beinist markaðssetningin aðallega að yngri neytendum og þeim sem hafa lítið handa á milli.
Þá er ekki hægt að kalla lánskjörin neitt annað en okur. Jafnframt er örðugt að sjá hvernig það leysir einhvern fjárhagsvanda að fá lán sem skal svo greiða tilbaka með allt að 25% álagi innan 15 daga.
Neytendasamtökin vilja því vara fólk eindregið við töku þessara lána og hvetja yfirvöld jafnframt til aðgerða er sporni við slíkum lánveitingum.
Það þarf fyrst að sækja um og fá samþykkt. Ekki gera það.
Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, gagnrýnir ný lög um greiðslujöfnun á heimasíðu Neytendasamtakanna.
Hann bendir á að greitt sé af lánum í samræmi við sérstaka
greiðslujöfnunarvísitölu. Lánið sé áfram verðtryggt svo höfuðstóllinn
hækki eftir sem áður. Einungis afborganirnar lækki. Afborganirnar geti
hinsvegar hækkað ef greiðslujöfnunarvísitalan, sem er samansett af
launavísitölu og atvinnustigi, hækkar.
Jóhannes segir ljóst að
hvorki sé um raunverulega leiðréttingu á höfuðstól né verðbótum að
ræða. Til langs tíma sé greiðslujöfnun óhagstæðari fyrir lántakanda.
Fréttin á ruv.is Gagnrýnir lög um greiðslujöfnun
Núna er rétti tíminn fyrir okkur að
hafa í huga orðatiltækið Að hafa vaðið fyrir neðan sig.
Peninganna menn eru meðvitaðir
viðskiptamenn sem spila með okkur ómeðvitaða fólkið.  Þeir
eru meðvitaðir um að meðan við erum undir pressu,pínu óttaslegin um afdrif
okkar og hætt að fylgjast almennilega með fréttum, þá munum við ekki hugsa alveg skýrt og munum ekki hafa vaðið
fyrir neðan okkur.
Á sama tíma og heimur fjármálastofnananna er flókinn vita þeir að  fjármál
okkar eru ekki flókin.  Þeir vita að við flækjum okkar mál með því að draga
tilfinningarnar okkar í þau. Við missum einbeitingu uppfull af ótta
eða vanmætti og jafnvel þorum ekki að leita eftir aðstoð, hvað
þá til þessarra stofnanna.
En hvernig getum við haft vit fyrir
okkur í ógnandi viðskiptaheimi?
Sem betur fer þurfum við ekki "fimm háskólagráður" til að
standa í þessu. Þetta hefur ekkert að gera með menntun og/eða kunnáttu um fjármálaviðskipti.
Við viðurkennum að þó við höfum ekki menntun og kunnáttu, þá höfum við vit á að sækja aðstoð.   Og með því að aftengja tilfinningarnar, þá getum við óhrædd haft vitið fyrir okkur.
Hér eru nokkur einföld trix:
Safnaðu upplýsingum um stöðu
þína Í DAG.    Biðja um afrit af öllum stafestum gögnum
sem þú hefur skrifað undir.  Fáðu svokallað FE yfirlit.  Ef þú
ert búinn að greiða af lánum í einhvern tíma þá óskarðu
eftir að fá útskrift af sundurliðaðri greiðslusögu allra
lána.  Fáðu afrit af öllum samningum og fylgiskjölum.  Því
meira sem þú getur fengið af yfirlitum, því betrra.
Fáðu lánaða dómgreind.
Sýndu öðrum sem þú treystir öll gögnin.  Hver fjölskylda á
alltaf alla vega einn sem er snjall í fjármálum.  Það kemur á
óvart að oft er það níski leiðinlegi frændinn sem hefur vit
fyrir sér í þessum málum. Einnig eru til lögfróðir menn og
konur sem geta hjálpað., Get líka bent á  hópa eins og
Hagsmunasamtök Heimilana eða DA samtökin.  Þar er fólk sem
getur skoðað gögnin með þér.  Betur sjá augu en auga.
Hafðu einhvern með þér.
Alltaf þegar þú á bein
samskipti við fjármálastofnanir hafðu einhvern með þér sem er
ekki beintengdur málinu.  Einhvern sem getur fylgst með og
hlustað, helst tekið glósur.  Að fá að taka upp fundi er
ekkert feimnismál.  Þetta eru bara viðskipti.
Eigðu samskiptin skjalfest.
Öll þín samskipti við fjármálastofnanir eiga að vera
skjalfest á einhvern hátt.  Hafðu til dæmis samband með tölvupósti með öll þín mál.
Ef þú átt bein samskipti, sendu viðkomandi starfsmanni
fundargerð og óskaðu eftir staðfestingu á að þetta fór ykkar
á milli.
Fáðu tilboð.  Þegar þú
veist stöðu þína gagnvart stofnuninni og ert tilbúinn til
viðskipta, skaltu óska eftir skriflegu tilboði.  Mundu
að þú ert bara að biðja um TILBOÐ, ekkert annað.
Farðu með tilboðin heim.
Heltu þér upp á te og reiknaðu sjálfur, og þáðu aðstoð
við að skilja betur hvað þú ert með í höndunum.  Lestu ALLA
skilmála, og yfirstrikaðu ALLT sem þú skilur ekki.
Stofnunin á að upplýsa þig, svo þú getur pantað annan fund
bara til þess að spyrja þessara spurninga.
Spurðu spurninga.  Og
ekkert vera með feimni.  Hér eru þínir hagsmunir í húfi.
Spurðu um allt sem þú skilur ekki.  Ef þú skilur ekkert, spurðu
um allt.  Sá sem kemur með þér á fundi getur skoðað allt
með þér.  Spurðu líka að minnsta kosti þrjá í þínum vina- og fjölskylduhóp.  Fáðu fulla vitund.
Gerðu gagntilboð.
Stundum eru vextir óhagstæðir eða lánakjör slík að þú munt
ekki ráða við af viti, og því er eðlilegt að gera þeim
gagntilboð sem þú getur ráðið við.
Hafðu ábyrgðarmenn þína
með í ráðum.  Þitt besta vopn núna er vitneskja.  Ef þú
þarft ábyrgðarmenn, skaltu bjóða þeim allar upplýsingar um
þig og þín fjármál.  Ekki vera feimin/n.  Þetta mun aðeins
byggja traust ykkar á milli, og þeir gætu jafnvel hjálpað þér
að gera betri viðskipti..
Aldrei skrifa undir neitt ef þú
ert í ótta, vanmætti eða slíkum þrengjandi tilfinningum.
Taktu gögnin frekar með þér heim aftur og fáðu aðstoð við
að lesa þau og skilja enn betur.
Aldrei skrifa undir neitt sem
þú hefur ekki kynnt þér.  Ef einhverjum spurningum er
ósvarað, ekki skrifa undir.
Aldrei láta pressa þig.
Aldrei láta pressa þig.  Hvorki
starfsmenn stofnunnar, vinir, fjölmiðlar, né þínar eigin
tilfinningar eiga að láta þér líða eins og undir pressu..  Ef
þú finnur pressu farðu heim og fáðu þér te.
Þetta er ferli sem getur tekið tíma
og fyrirhöfn.  En ef þú getur sparað þér milljónir, jafnvel
fátækt eða gjaldþrot, hvaða máli skipti þótt þú eyðir
mörgum klukkutímum í að spyrja starfsmenn þessara stofnanna
allra spurninganna.
*Mundu að þú ert að óska eftir
þjónustu.  Taktu þinn tíma í að skilja allt áður en þú
skrifar undir*
Það er sem fínofið net aðgerða og stofnanna sem draga úr okkur allan mátt.
Fjölmiðlar.  Þeir eru uppfullir af flóknum fréttum, óskýrum og erfiðum fyrir venjulega að fylgja.  Fyrir vikið fáum við það sem ég kalla fréttadoða.  Við missum einbeitninguna gagnvart fréttunum, förum að lesa yfir fyrirsagnir án þess að lesa fréttina sjálfa, og látum duga að heyra fréttir útvarps og sjónvarps.  Tilfinningar sem við upplifum þegar við fáum allar þessar fréttir, eru annars vegar reiði og hatur gagnvart kerfinu, og hins vegar vanmáttur, ringulreið og þreyta gagnvart kerfinu.  Við finnum okkur ráðþrota.
Bankar.  Bankarnir eru líka flóknir og erfiðir að ná tökum á ef við erum leikmenn í viðskiptum.  Við tökum við “leiðsögn” þjónustufulltrúanna og leggjum eigur okkar og skuldbindingar í hendur starfsmanna bankanna.  Við vitum að kerfið er ekki sanngjarnt og það virðist aðeins vilja rétta hlut þeirra fáu. Tilfinningar sem við upplifum þegar við reynum að eiga viðskipti við bankana, eru annars vegar reiði og hatur gagnvart bankanum, og hins vegar vanmáttur, ringulreið og þreyta gagnvart kerfinu. Við finnum okkur ráðþrota hér líka.
Stjórnvöld. Það líður ekki sá dagur að ég heyri ekki athugasemd eða mótbárur á stjórnvöld.  Þessi stofnun sem að nafninu til er í okkar eigu virðist ekki vera að vinna fyrir okkur.  Þvert á móti koma lausnir sem virðast sérsniðnar að bönkum og fjármálastofnunum.  Grunnur þjóðfélagsins, heimilin, eru ekki sett í fyrsta sæti. Orðatiltæki eins og “Heima er best”og “Home is where the heart is” eru í útrýmingarhættu.  Enn og aftur finnum við okkur ráðþrota.
Atvinna. Verkalýðshreyfingin virðist lömuð, atvinnuleysi eykst, gjaldþrota fyrirtækjum fjölgar.
Það skal engan undra að við missum kraft þegar allt í okkar umhverfi spyrnir gegn okkur.  Jafnvel þeir sem spyrna gegn okkur virðast ráðþrota.  Stjórnvöld hver á móti öðrum, atvinnulausir mótmæla ekki, heimilislausir og matarlausir eru hvergi til umræðu.  Þeir einu sem virðast á lífi eru þeir reiðu, þeir fáu sem þora að standa og mótmæla.
Kviksyndi.  Allt í kringum mig er ruglingslegt.  Það er svakalega erfitt að setja fótinn niður. Það er eins og stjórnvöld annars vegar og bankar hins vegar séu að halda okkur í kviksyndi og neita okkur um fastan grunn til þess að hefja uppbyggingu okkar.  Við þurfum festu til að geta staðið styrk.  Enginn treystir þeim “grunni” sem við stöndum á.
Bankinn vill bara peninginn þinn og eignirnar þínar.  Flestir eru farnir að sjá að bankinn er að éta allt fjármagn upp löglegu en siðlausu leiðina.  Tvöfalt kerfi þar sem valdir fá afskrift, en almúginn þarf að borga.
Þá kemur vangaveltum mínum um aðgerðir sem ég get hrint í framkvæmd án þess að brjóta rétt minn og ógnar ekki mínu frelsi og framtíð.  Hvað getur einstaklingur gert þegar bankariseðlan virðist ætla að éta hann lifandi?
Er hægt að draga tennurnar úr þessari risaeðlu?
JÁ!!
Sannleikurinn um bankann er að hann lifir á 2% bindiskyldu.  Í stuttu máli þá getur bankinn lánað út féð sem ég hef lagt inn.  Minn peningur er ekki í bankanum.  Hann er í láni.  Bankinn hefur aðeins lofað að endurgreiða mér ásamt vöxtum að launum fyrir að "geyma" peninginn.
Bindiskyldan er síðan ásinn í erminni.  Ef ég legg inn 10.000 krónur í banka,  þá “má” sá banki lána út 98% af því sem ég lagði inn, eða 9800 krónur.Aðeins 200 kr eru trygging.  Þá liggur ljóst við að ef ég tek út krónurnar mínar, þá má bankinn ekki lengur lána 98% af því.  Hvað gerist ef allir taka út peninginn sinn?
Annað sem bankinn lifir á eru þjónustugjöld.  Flestir nota debit og kreditkort.  Flestir fá reikninga gegnum heimabanka, eða með greiðsluseðli frá bankanum.  Bankinn er að taka gjald fyrir allt sem við gerum.  Því meira sem ég geri sjálfur, því minna getur bankinn rukkað mig fyrir.   Það er betra að staðgreiða árið en að setja bíla og hústryggingarnar á boð- eða raðgreiðslur.
Gallinn er að við höfum komið okkur í erfiða stöðu, en það er hægt að bakka út.  Að losa sig við debitkort er að minnsta kosti 15.000 króna sparnaður á ári per einstakling.
Ef 100 þúsund debitkortum er skilað inn mun bankinn verða af einum og hálfum milljarði í færslugjöldum,  hið minnsta.
Það ert þú sem hefur valdið.    Ekki láta tilfinningarnar ráða för.
Kynntu þér hvað þú átt að gera!!
Kynntu þér Fimm atriði sem þú ættir að gera fyrir þig og þína fjölskyldu
Almenn og merkjavara
Þegar þú verslar í matinn getur þú séð mikið vörum merktri versluninni sjálfri.
Þessar vörur kalla ég almennu vörurnar.  Mitt viðhorf til þessarar vöru
hefur verið að hún sé lakari í gæðum, eftirlíking  sérmerktu merkjavörunnar.
Lengi keypti ég alltaf "merkja"djús í tveim aðal
lágvöruverðsverslununum og leit aldrei við djúsnum merktum versluninni
sjálfri.  Þegar ég fór að spara fór ég að versla þessa "ómerkilegu"
djúsa.  Þá vakti það  athygli mína að allir
þessir djúsar voru eins ef frá er talið merkið.  Þeir eru allir í sömu
tegund brúsa, með sömu innihaldslýsingu og
sama bragðinu.
Eftir smá óopinbera rannsókn komst ég að því að
þessir djúsar koma allir úr sömu vélinni úr sömu verksmiðjunni, en ef
þeir voru merktir verslununum munaði miklu í verði.
Bæði dýri og ódýri djúsinn stóðu í sömu hillunni, annar á 249 kr og hinn á 189 kr.
Þetta eru kannski engar nýjar fréttir en vert að minna á.  Lágvöruverðsverslanirnar fá vörur framleiddar fyrir sig af
nákvæmlega sömu fyrirtækjum og þeir eru að keppa við.  Það þarf ekki að vera að allir framleiðandur setji sínar vörur svona á
markað, en auðveld athugun innihaldslýsingar getur breytt viðhorfum.
Mörgum kemur á óvart að í mörgum tilvikum eru þær nákvæmlega eins.
Þetta er gott fyrir bæði framleiðandann og neytendann.
Framleiðandinn þarf ekki að eyða stórfé í að auglýsa nýju vöruna, hann
einfaldlega nota verðmæta hilluplássið við hliðina á dýrari merkjavörunni, og neytandinn sér ódýran valkost og fær að velja.  Allir vinna.
Í nýlegri bandarískri könnun sögðu 62% að almennu vörurnar, eða Búðarvörurnar, væru alveg jafn góðar og merkjavaran.
Verslanir bjóða líka sérmerktar ódýrari vörur. Til dæmis First Price og Euroshopper.  Þegar við veljum að spara er því oft góð lausn að skoða þær líka með almennu vörunum. Klósettpappír, frosinn og ferskur kjúklingur, sælgæti, hrísgrjón, hveiti, sykur, salt, epla og
appelsínudjús, frosið grænmeti, bleyjur og jafnvel sokkabuxur á börn
eru oft jafn góðar vörur hvort sem þær eru merkjavara eða almennar.  Varaðu þig þó á að almenna varan getur verið lakari í gæðum.  Það er alltaf nauðsynlegt að gera samanburð.  Ég vel alltaf vörur sem eru innlend framleiðsla og augljóslega pakkað fyrir verslunina.
Þó er ekki átt við að þú eigir að hætta að versla uppáhalds
matinn þinn og kaupa bara almennt merkta vörur.   Það eru hins vegar
mikið af tækifærum í almennt merktum vörum sem smakkast eins og eru
jöfn að gæðum, og oftast er umtalsverður sparnaður fólginn í því að
versla þær vörur.
Þú getur sparað allt að 30% í verði með því að vera meðvitaður um
hvaða vöru þú ert að kaupa, ekki bara merkið.  Og þar sem matarkarfan
er sá sparnaður sem þú sérð strax, þá er ekki vitlaust að fara að skoða
betur almennu vörurnar í hillunum.
(http://tinyurl.com/76focg)
(http://tinyurl.com/5ogswq)
Már telur að þegar þær aðstæður skapist verði brýnt að svara spurningum
um í hversu miklum mæli íslenskum bönkum verði leyft að stunda
alþjóðlega bankastarfsemi.
Greiðsluverkfallsnefnd HH hefur að vel ígrunduðu máli ákveðið að boða til GREIÐSLUVERKFALLS FRÁ 15. NÓV. TIL 10. DES. 2009.
Að
mati stjórnar HH hefur á engan hátt verið svo mikið sem nálgast kröfur
Hagsmunasamtaka heimilanna um leiðréttingu höfuðstóla íbúðalána
heimilanna hvað þá leiðréttingu á öðrum neytendalánum eða endurskoðun á
verðbreytingarákvæðum íbúðalána og útreikningum verðtryggingar. Hvorki
stjórnvöld, Samtök fjármálafyrirtækja né Landssamband lífeyrissjóða
hafa tekið boði samtakanna um samningaviðræður.
Þvert á móti hafa stjórnvöld nú sett lög ("kreppuhalalögin") sem
miðast við að staðfesta eignaupptöku fjármálastofnana í helsta
sparnaðarformi landsmanna, heimilum þeirra. Forsendubresturinn hefur í
reynd verið viðurkenndur, kröfuhafar gömlu bankanna hafa viðurkennt
tapið en stjórnvöld og fjármálakerfið eru staðráðin í að halda
heimilunum í gíslingu stökkbreyttra höfuðstóla. Reynt er að blekkja
okkur með því að tala um "leiðréttingu afborgana" og lengt í ólinni svo
tærnar ná að tylla sér og yfirvofandi fjárhagsleg aftaka er dregin á
langinn. Engin leiðrétting fer fram á verðbreytingarþætti verðtryggðra
eða gengistryggðra lána. Gefin eru óljós loforð um að þetta verði gert
seinna þegar betur stendur á. Það er samtökunum hinsvegar alveg ljóst
að ef ekki fer fram leiðrétting undir núverandi kringumstæðum, ef menn
eru ekki að sjá nauðsyn þess núna munu þeir ekki sjá nauðsyn þess
seinna nema þá þegar það er um seinan og skaði þúsunda heimila er
óafturkræfur.
GREIÐSLUVERKFÖLL MUNU ÞVÍ HALDA ÁFRAM ÞAR TIL
STJÓRNVÖLD OG RÁÐAMENN FJÁRMÁLAKERFIS SJÁ SÉR FÆRT AÐ SEMJA VIÐ
HAGSMUNASAMTÖK HEIMILANNA UM LEIÐRÉTTINGU FYRIR HEIMILIN Í LANDINU.
Við
viljum réttlæti og höfnum ölmusu þönkum ráðamanna og fjármálakerfis.
Hér er um okkar verðmæti að ræða, þeim verður ekki deilt út til bjargar
fjármálakerfi sem hefur enn ekki hysjað upp um sig.
Það er orðið sorglegt að algengasta ástæða skilnaða sé fjárhagsvandi.
Margir, þar á meðal ég, hafa farið þá leið að reyna að redda málunum.  Taka aukayfirdrátt sem nær yfir erfiðasta hjallann.  Svo líður tíminn og erfiðasti hjallinn er að virðist endalaus, og í tilfelli margra, þá er ófyrirséð hvar skuldirnar enda.  Ég fór að því reyna að fela skuldirnar fyrir konunni minni, reyndi að líta vel út, ýkti um fjárhagsstöðuna og tók fleiri lán til að redda okkur lengra.  Svo sprakk blaðran, og konan líka.
Minn erfiðasti hjalli var að viðurkenna mistökin.  En ég átti enga kosti.  Annað mjög erfitt var að gefast upp, og þiggja ráðgjöf frá öðrum.  Ég viðurkenndi að ég get ekki séð neitt út úr neinu í fjármálum, og ég hafi síendurtekið tekið örvæntingafullar ákvarðanir sem síðar meir drógu okkur neðar í skuldasúpuna.
Ég á yndislega konu, sem sá lengra en reiði hennar náði.  Og hún samdi við mig.  Mér var bent á DA samtökin, sem eru ein merkilegustu samtök sem ég hef kynnst.  Og í mjög stuttu máli náði ótrúlegum bata og fjótlega fann ég jafnvægi í tilfinningum mínum gagnvart peningum og bankarisaeðlunni.
Kæri lesandi.  Ef þú þekki einhvern sem er í þessum sporum, viltu benda viðkomandi á DA samtökin?
Það tapar enginn á því að auka þekkingu sína, og hún gæti bjargað hjónabandinu, jafnvel lífinu.
Til þess að reiðast þarf einhverja forsögu.
Geri mér í hugarlund að forsaga mótmæla á Austurvelli sé ótti almennings um hag sinn, vonbrigði almennings á hve vel ríkisstjórn taki á málum almennings, hræðsla vegna engra eða lítilla upplýsinga.  Ringulreið vegna þess að fjölmiðlar upplýsa ekkert nema tölur og áætlanir, möguleika, svarsýni, fleiri tölur, atvinnuleysi, gjaldþrota fyrirtæki og mögulega gjaldþrota fyrirtæki.  Svo mikið er af misvísandi upplýsingum í fjölmiðlum að enginn hefur lengur neitt á hreinu.  Ég skil reiði sem myndast getur út frá þessum tilfinningum.
Tilfinningar sem koma upp gagnvart fólki sem virðist, eða hreinlega brýtur á öðru fólki, skil ég vel.  Reiðina sem fylgir stundum í kjölfar þessara tilfinninga skil ég líka.  En útrás reiðinnar að sletta málningu á hús skilar ekki miklu í þessari orrustu almennings um réttsýni.
Skemmdarverk er aðeins tilfærsla á tilfinningum.  Mín reiði á að færa þér sektarkennd, jafnvel ótta, og þú átt þess vegna að breyta að mínum vilja.  En það er bara sjaldnast rétt hegðun.  Bankinn minn lækkar ekki greiðslubyrðina þótt ég berji bíla og sletti málningu á hús bankastjórans.
Við þurfum að hugsa og vita ( ekki finna) hvað við gerum til að fá útrás.  Getum við nýtt orkuna og hugarfarið til einhvers sem virkilega gengur upp?
Eitt af því sem virkar er að taka aflið, fjármagnið, frá spillingunni.  Greiðsluverkföll, hætta viðskiptum við banka, verslanir, stofnanir sem eru í eigu spillingarinnar.  Hættum að nota debit og kreditkort.  Ef Baugur og Hagar eiga Bónus, 10-11, Útilíf,þá verslum við ekki þar.  Ef Pálmi Haralds á Iceland Express þá verslum við ekki þar.  Það eru fleiri bankar en Landsbankann, Kaupþing og Íslandsbanki. Við þurfum ekki að versla þar.  Skoðaðu Sparisjóð Suður-Þingeyjasýslu eða Sparisjóð Strandamanna. Þar er heimabanki, konfekt og sparibaukar, alveg eins og í höfuðborginni.
Spillingin vill peninginn þinn!!!  Bestu skemmdarverkin eru að gera ekki eins og spillingin vill.
Ég tel að ríkisstjórn okkar sé föst í sömu hringiðu og flestir viðskiptavinir bankanna.  Að semja með tilfinningunum, þegar semja á með vitinu.
Lítil saga frá okkur hjónum um tilraun fjármálastofnunar til að hræra í tilfinningum.
Við hjónin ákváðum um síðustu mánaðarmót að taka þátt í greiðsluverkfalli ásamt svo mörgum öðrum.  Þess vegna geymdum við að greiða alla okkar reikninga þar til 15 október. Ekki þurftum við að bíða lengi eftir viðbrögðum bankans.  Ég fékk bréf sem ábyrgðarmaður, stílað 7 október, þar sem mér er tjáð að afborgun sem greiða átti 1 okt, sé ógreidd.  Í bréfinu er tekið fram að skuldara hafi þegar verið tilkynnt um að afborgunin sé ógreidd.
Sem er ekki rétt, því skuldarinn fékk bréf frá bankanum stílað daginn eftir, 8 október, þar sem minnt er á ógreidda afborgun , og hann kvattur til þess að greiða.
Mér líkar ekki svona.  Þetta bíður upp á erfið samskipti og rýrir traust milli skuldara og
ábyrgðarmanns.  Gefur færi á óþarfa gremju og ótta meðal fólks.  Þetta rótar upp tilfinningum þegar við eigum að hugsa með viti, og það er akkurat það sem bankinn vill að gerist.
Það þarf að hjálpa fólki og kenna því að hafa vitræn samskipti við fjármálastofnanir.
Fjármálastofnanir er alltaf í viðskiptum, vitrænum aðgerðum, en þær hafa
samband við okkur á persónulegu nótunum og höfðar til tilfinninga
okkar, t.d. græðgi, eignartilfinninga, ótta um afkomu, sektarkenndar.
Við höfum þjónustufulltrúa, sem er okkar persónulegi tengill við stofnunina.  Okkur er
boðið í greiðslumat og leiðréttingar, persónulega.  Allt er sett fram eins persónulega
og hægt er.  Stofnunin ruglar okkur síðan í þessum samskiptum.
Hefur til  dæmis
einhver annar en ég fengið  bréf (hótun) frá fjármálastofnun um að eitthvað verði sent í lögfræðing, og
undirritað: Með kveðju, Starfsfólk [fjármalastofnunar þinnar].  Hver er að senda bréfið? Hvert sný ég mínum persónulegu samskiptum?  Er nóg að semja við húsvörðinn, sem er starfsmaður?
Fyrirvarar
eru alltaf stuttir, tímamörk þröng, og allt er litað dökkum litum.   Við fáum þá tilfinningu að
allt sé okkur illfært, en fjármálastofnunin getur alltaf galdrað fram lausn, sem
sjaldnast leysir okkar mál, en "reddi" okkur.
Við kunnum
fæst að eiga viðskipti af viti. Flestum okkar er fyrirmunað að muna þó ekki nema helstu hefðir, lög og reglur fjármálaviðskipta.  Og meðan allir kepptust um kúnnann, fyllst markaðurinn af alls kyns tilboðum, leiðum, reglum, tilboðum.  Og á ný er allt að fyllast af "reddingum", leiðréttingum, tilboðum, hótunum, greiðslujöfnun, greiðsludreifingu, greiðslustöðvunum, frystingum, og ekki.  Við stígum núorðið sjaldnast fæti inn á fjármálastofnanir nema uppfull af tilfinningum.  tilfinningum um að nú sé eitthvað
að falla á gjalddaga, eitthvað sé fallið og verði nú jafnvel tekið frá
okkur, tilfinningu um fáfæði, ótta, smæðar og einmanaleika. Bankinn sem allt vildi gera fyrir rúmu ári, er nú sem hungruð ófreskja.
Fáir tjá þessar tilfinningar í á staðnum af ótta við að sýna veikleika sinn.  Flestir reyna að hylja þær, og margir gera ýmislegt Hugsanalaust
til að þurfa ekki að sitja lengur í ótta og erfiðleikum.  Skrifa upp á
eitthvað sem virðist ganga.  Það eru fáir sem taka samingana heim og fá
rými til þess að losa sig við tilfinningar, og skoða sín mál með viti.
DA samtökin eru stórkostlegur vetvangur þar sem fólk getur
setjst niður og rætt tilfinningarnar sem það þarf að losna við, fengið stuðning og leiðsögn, svo það
geti unnið sín viðskipti við bankann af viti.
Ef þú veist um samskonar vetvang sem styrkir og leiðbeinir fólki á þennan hátt, láttu okkur vita.
Stöndum saman
Heimasíða DA samtakana á Íslandi http://www.daiceland.org/index.htm
Enn eitt snilldartilboðið dettur inn um lúguna.
Í Þetta sinn er Bílaumboðið Hekla að bjóða kjarakaup í viðhaldi á bílnum, vetrarstandsetning á vildarkjörum. Bremsuklossar að framan, bremsuborðar að aftan, tvær rúðuþurrkur, tvær ljósaperur, 4 lítrar af smurolíu og ein smurolíusía. Samtals, með vinnu og efni: 191.087 krónur.
Tilboðið er víst það, að boðið er upp á vaxtalaust þjónustulán, til að skipta þessu niður á 12 mánuði.
Það má líka segja ykkur að ég gerði þetta allt sjáfur, tók samtals tvær klukkustundir í vinnu, og efnið kostaði undir 30 þúsund krónum.   Ég var því með 80 þúsund krónur í laun á tímann í bílskúrnum.
Leið eins og útrásarvíkingi.
Ef þú ert ekki laghenti bifvélavirkinn þá eru til aðrir en umboðin sem taka að sér viðgerðir og viðhald bifreiða, og rukka sanngjarnt verð fyrir.
Flest verkstæði geta séð um almennt viðhald bílsins, hvaða tegund sem hann heitir.
Skora á alla að gefa sér góðan tíma til að gera verðkannanir.